Pantalla :
Berfætt og gegnköld reikar lítil stúlka um götur borgarinnar. Alltof stórum skónum tapaði hún við að flýja undan hraðskreiðum vögnum og nú eru fætur hennar, jafnt og hendur, bólgin af kulda. Það eina...
„Í hvert skipti, sem gott barn deyr, kemur engill frá guði niður á jörðina, tekur dauða barnið sér í faðm, breiðir út stóru, hvítu vængina sína og flýgur á alla þá staði, sem barninu þótti vænt um í lifanda...
Í fegurstu rósinni í garðinum býr agnarlítill álfur, svo lítill að ekkert mannlegt auga fær greint hann. Kvöld eitt er hann svo seint á ferð að rósin hans hefur lokað blöðum sínum. Á næturgöltri sínu...
Flest höfum við um ævina kynnst töfrum stækkunarglersins. Í því má kynnast nánar hversdagslegum hlutum og sjá það sem augað greinir ekki. Gamall fjölkunnugur vísindamaður rýnir í vatnsdropa úr mýrinni....
Í kínverska keisaradæminu er mikið um dýrðir, postulínshallir og skrúðgarðar gleðja þar gestsaugu. Öllum sem heimsækja staðinn ber þó saman um að af beri söngur næturgalans, sem syngur fyrir fátæka fólkið...
Stúlkan Inga er reglulega illt og óprúttið barn. Hún iðkar það að kvelja þá sem minna mega sín, auk þess sem drambsemi hennar er svo mikil að hún sér ekki sólina fyrir sjálfri sér. Er hún vex úr grasi...
Anna Lísa er fríð og lífsglöð kona. Son eignast hún en enginn faðir í spilinu. Hún tekur á það ráð að gefa barnið verkamannahjónum. Sjálf ræður hún sig á heimili greifahjóna, og gerist brjóstmóðir sonar...
Hún amma er orðin gömul, en þó er hún bæði falleg og vitur. Engin segir sögur eins og hún og margt hefur hún lært á langri ævi. Ein eign er henni kærust, en það er þurrkuð rós, sem hún geymir inni í sálmabókinni...
Prinsessa nokkur hefur látið þau boð út ganga, að hún muni taka sér fyrir eiginmann þann biðil sem best komi fyrir sig orði. Allir þeir ungu menn sem nokkuð telja sig hafa til brunns að bera leggja af...
Ungur konungsson sem lifir í vellystingum á sér engan draum heitari en að komast í Paradísargarð Biblíunnar. Hann veltir fyrir sér táknsögu testamentisins og kemst að þeirri niðurstöðu, að sjálfur hefði...
Það er alkunna að þegar börnin syfjar á kvöldin er það vegna þess að Óli Lokbrá stráir dufti í augu þeirra, sem gerir augnlokin þung svo þau haldist ekki uppi. Þetta gerir hann svo börnin verði róleg...
Andarkollan er himinlifandi þegar eggin hennar klekjast út og úr þeim skríða fallegustu andarungar sem hún hefur augum litið. Eitt eggið er stærra en hin og lætur bíða eftir sér, en andamamma ákveður...
Voldug drottning með græna fingur liggur fyrir dauðanum. Á ævi sinni hefur hún ræktað upp heimsins fegursta blómagarð með öllum afbrigðum af blómum. Nú er ekkert sem gæti forðað henni frá dauðanum nema...
Í þrjúhundruð sextíu og fimm ár hefur gamla eikitréð staðið á sama stað í skóginum. Okkur virðist það óralangt, en fyrir öldunginum er tíminn afstæður og eitt ár virðist jafnast á við einn dag í okkar...
Ungur listamaður þjáist af nánast ólæknandi fullkomnunaráráttu. Það er sama hversu fögur verkin hans eru, hann eyðileggur þau öll, því hann er ekki ánægður með útkomuna. Dag einn á hann ferð framhjá furstahöll,...
Innan um nýju húsin við götuna stendur ennþá eitt gamalt hús. Flestir hafa horn í síðu þess, þar sem það sker sig úr nýbyggingunum og er illa viðhaldið. Einn er þó sá, sem geðjast vel að gamla húsinu,...
Stúlkan Katrín er sárafátæk, en á dánardegi móður hennar gefur gamla skóarakonan henni rauða skó. Katrínu þykja skórnir undurfagrir og ber þá við útför móður sinnar. Í kjölfarið verður hún fyrir þeirri...
Í fögrum garði er margt að finna, ýmsar blómplöntur og jurtir lifa í sátt og samlyndi við smádýrin. Fyrir utan garðinn lifa stærri skepnur, svo sem kýr og kindur. Rósaviður er þar einn, sem springur út...
Litli Kláus á einn hest, en stóri Kláus fjóra. Alla daga vikunnar nema sunnudag verður litli Kláus að lána sinn eina hest fyrir plóginn með hestum stóra Kláusar. Á sunnudögum hefur hann þó hópinn fyrir...
Hræðilega vondur kóngur svífst einskis til þess að ná yfirráðum yfir öllum sem á vegi hans verða. Með hrottalegum herförum og klækjabrögðum vinnur hann undir sig hvert landsvæðið á fætur öðru. Allir óttast...
Úti er vor og allt í blóma. Gróðurinn er að vakna og ungviðið skríður úr eggjum. Þessi fegurð og birta umhverfisins eru þó í hrópandi andstöðu við það sem á sér stað inni í nærliggjandi kirkju. Þar flytur...
Á herragarði nokkrum búa rík hjón, sem leggja mikið uppúr því að gera þeim gott sem minna hafa milli handanna en þau sjálf. Til hjúa þeirra teljast meðal annarra garðyrkjuhjón, sem eiga dreng sem ekki...
„Æfi mín er fallegt æfintýr, svo auðugt og sælt!“ Svo hljóma fyrstu orð bernskuminninga Hans Christians Andersen. Undir lok bókarinnar segir hann að með aldrinum sjái maður það fjarlæga best og þá sé...
Gamla konu dreymir um að eignast litla dóttur og þegar galdranorn útvegar henni byggkornið, sem úr skríður stúlkan Þumalína, verður hún himinsæl. Þumalína litla er ekki stærri en þumall, og unir hag sínum...
Storkafjölskylda nokkur á sér hreiður á þaki yst í þorpinu. Þar stendur storkapabbi á öðrum fæti en storkamamma gætir hreiðursins með ungunum í. Á hverjum degi koma börnin úr þorpinu og leika sér í námunda...
Í fjarlægu landi búa tólf systkin, ellefu bræður og ein systir. Börnin eru konungborin og lifa lífi sínu eftir því, þar til þau verða fyrir því óláni að faðir þeirra kvongast á ný. Nýja drottningin er...
Sökktu þér töfra og galdraheim Hans Christian Andersen, þar sem prinsar og prinsessur fara í spennandi ævintýri! Með uppáhalds prinsana og prinsessurnar þínar í aðalhlutverki, munu þessar sögur heilla...
Hvað er sannleikur? Það er varla til betri leið til að læra um sannleikann en gegnum ævintýri Hans Christian Andersen. Söguþráður þessara ævintýra skapar góðann grunn til að hugsa og ræða um sannleikann...
Hvað er hugrekki? Hvað þarf til þess að vera hugrakkur? Hvernig lýsir hugrekki sér? Fylgdu sögupersónum Hans Christian Andersen í ævintýrum sínum og uppgötvaðu hvað hugrekki þýðir fyrir þær. Safn fyrir...
U rybníka žije spousta rodin – růže, vrabci a samozřejmě i lidé. Jednou se malí vrabčáci zeptají svých rodičů: „Co je to krása?" Odpověď se dozví překvapivým způsobem!
Puede que no esté disponible para la venta en tu país, sino sólo para la venta desde una cuenta en Francia.
Si la redirección no se produce automáticamente, haz clic en este enlace.