timer
Tiempo de lectura
03h02
|
„Æfi mín er fallegt æfintýr, svo auðugt og sælt!“
Svo hljóma fyrstu orð bernskuminninga Hans Christians Andersen. Undir lok bókarinnar segir hann að með aldrinum sjái maður það fjarlæga best og þá sé einmitt best að skrifa um bernskuárin, en það er nákvæmlega það sem hann gerir. Lesendur sjá Hans Christian læra og þroskast með eigin augum, frá fæðingu hans, fram á unglingsár og að lokum þegar hann er orðinn ungur maður, tilbúinn til að takast á við lífið.
Verkið er skyldulesning fyrir unnendur ævintýra H.C. Andersen, enda gefur það einstaka mynd af bernsku mannsins sem hefur verið dáður af svo mörgum börnum í gegnum tíðina.
Hans Christian Andersen (1805-1875) er flestum kunnugur. Eftir hann liggja einhver þekktustu ævintýri okkar tíma, enda hafa þau verið þýdd á fjölmörg tungumál og útfærð í ótal útgáfum, bæði á prenti, á leiksviði, í sjónvarpi og ekki síst sem kvikmyndir. Meðal þekktustu ævintýra hans eru „Litla hafmeyjan“, „Ljóti andarunginn “, „Nýju fötin keisarans “ og „Prinsessan á bauninni “. Fyrir utan ævintýri liggja eftir hann bæði leikrit, skáldsögur, ljóð, ferðasögur og ævisögur. Meðan hann lifði voru önnur skáldverk hans ívið söluhærri en ævintýrin sem áttu þó eftir að festa nafn hans í sessi svo um munaði.
Título : Æfintýr æsku minnar
EAN : 9788727175621
Editorial : Saga Egmont International
L'audiobook Æfintýr æsku minnar está en formato MP3
¿Quieres leer en un eReader de otra marca? Sigue nuestra guía.
Puede que no esté disponible para la venta en tu país, sino sólo para la venta desde una cuenta en Francia.
Si la redirección no se produce automáticamente, haz clic en este enlace.
Conectarme
Mi cuenta